Makríll er afar ljúffengur matfiskur

Makríll er ljúffengur matfiskur sem nýtur mikilla vinsælda hjá nágrannaþjóðum okkar. Makríll er einstaklega ríkur af mikilvægum næringarefnum. Rannsóknir sýna að regluleg neysla á makríl getur dregið verulega úr magni óæskilegs kólesteróls og makríll er tvöfalt ríkari af Omega-3 fitusýrum en t.d. lax.

Makríll inniheldur líka efnið Phosphatidylserine sem talið er draga úr einkennum ADHD (ofvirkni og athyglisbrestur) og Alzheimer (elliglöp).

Það er fagnaðarefni að makríllinn er farinn að venja komur sínar á Íslandsmið og mikil búbót fyrir heimilin því ódýrari og hollari mat en makríl er erfitt að finna. Nýtum okkur þessa frábæru fæðu!

Einfalt og gott

Makríllinn einfaldlega bakaður í ofni með olíu salti og pipar. Þetta er nú ekki flókið.

Hráefni (fyrir 2)

  • 2 makrílflök (látið þiðna)
  • ólífuolía
  • Salt og pipar
  • 1 lime eða 2 sítrónubátar

Aðferð

  1. Hitið ofn í 200°C.
  2. Fjarlægið beinin úr flökunum með beinaplokkara. Eða skerið úr með hníf.
  3. Penslið flökin báðum megin með olíu.
  4. Saltið og piprið að smekk, leggið flökin með roðið upp, í eldfast mót eða pönnu sem má setja í ofn.
  5. Bakið í 10 mín, eða þar til roðið fer að brúnast.
  6. Berið fram með lime eða sítrónu.

Makríll með sænskri sinnepsdillsósu

Makríll steiktur og bakaður í ofni.

Hráefni (3-4)

  • 2-3 makrílflök
  • Pipar og salt
  • Olífuolía

Hráefni í sósuna

  • 7 tsk grófkornað sinnep
  • 2 tsk hrísgrjóna- eða hvítvínsedik
  • 5 tsk sykur
  • 5 tsk dill ferskt saxað (skiljið dálitið eftir ósaxað til skrauts)
  • 3 tsk ólífuolía

Aðferð

  1. Hitið ofn í 190 C.
  2. Hitið dálítið af ólífuolíu í eldfastripönnu og setjið flökin með roðið upp í 2 mínútur.
  3. Snúið flökunum og setjið pönnuna í ofninn í 3-5 mínútur.
  4. Setjið flökin á diska og penslið með sinnepssósu. Skreytið með grein af fersku dilli.

Það passar vel að hafa með þessu soðnar kartöflur.

Steiktur makríll á lauksalsabeði

Steiktur makríll á lauksalsabeði.

Hráefni (fyrir 4)

  • 1 lítil krukka af sólþurrkuðum tómötum
  • 30 g steinselja, söxuð
  • 30 g basil, saxað
  • 30 g sage, saxað
  • 30 g rósmarin, saxað
  • 2 hvítlauksgeirar, saxaðir
  • 100 g brauðrasp
  • ólífuolía
  • 8 makrílflök
  • 3 stórar handfyllir af blönduðu sallati
  • salt og svartur pipar
Hráefni í lauksalsa:
  • 2 msk ólífuolía
  • 3 laukar skornir í 1cm teninga
  • 100 g af capers
  • 70 g tómatar
  • 20 g steinselja (flöt lauf) fínt söxuð
  • salt og svartur pipar

Aðferð

  1. Byrjið á salsanu. Hitið olíuna á stórri pönnu á miðlungs hita. Steikið laukinn í u.þ.b. 5 mínútur þar til hann er glær. Takið laukinn af pönnuni og leggið til hliðar.
  2. Undirbúið kryddjurtarasp. Setijð sólþurrkaða tómata, kryddjurtir og hvítlauk í matvinnsluvél og tætið. Bætið brauðraspi og látið matvinnsluvélina blanda þar til brauðraspið er orðið að grænu kryddjurtaraspi. Bætið smá ólífuolíu og setjið blönduna á disk.
  3. Aftur að salsanu. Bætið capers og tómötum við laukinn. Hrærið steinselju saman við. Saltið og piprið að smekk.
  4. Hitið steikarapönnu með dálítilli olíu.
  5. Saltið og piprið makrílflökin og hjúpið svo með kryddjurtamylsnu.
  6. Steikið á pönnu með roðið niður í 3-4 mínútur. Snúið og steikið í 1-2 mínútur á hinni hliðinni.
  7. Undirbúið sallatið með salti, pipar og ólífuolíu.
  8. Deilið lauksalsa á fjóra matardiska. Leggið makrílflökin ofan á salsabeðið. Berið fram með sallati.

Pönnusteiktur makríll

Makrílflök á pönnu með hvítlauk, reyktri papriku og steinselju. Tekur ekki nema 5 mínútur!

Hráefni (fyrir 2)

  • 2 makrílflök
  • Ólífuolía
  • Salt
  • Pipar
  • 4 hvítlauksrif söxuð smátt
  • 1 msk ítölsk steinselja söxuð
  • 1 tsk reykt paprikuduft
  • Rauðvínsedik

Aðferð

  1. Fjarlægið bein úr flökum
  2. Hitið ólífuolíu í pönnu þar til hún er vel heit
  3. Kryddið flök með salti og pipar og leggið á pönnuna með roðið niður
  4. Steikið flökin í 4 mínútur með roðið niður, snúið og steikið í eina mínútu í viðbót
  5. Setjið flökin á disk og bætið meiri ólífuolíu á pönnuna
  6. Bætið útí hvítlauk, steinselju, salti, pipar, paprikudufti og svo rauðvínsediki og hrærið og látið malla í hálfa mínútu.
  7. Hellið sósunni yfir fiskinn og berið fram.

Makríl sashimi

Það er gaman að bjóða upp á makríl sashimi sem forrétt, líklega er makríllinn hollastur þannig. Makríl sashimi er svo ljúffengt að það er yfirleitt horfið nánast um leið og það er borið fram.

Hráefni:

  • 2 flök af frosnum makríl, þýdd
  • Salt
  • hrísgrjónaedik
  • Wasabi
  • Soya sósa
  • Engifer sýrður

Aðferð:

  1. Hreinsið flökin, setjið á disk, látið roðið snúa niður, stráið salti yfir. Kælið í 40 mínútur.
  2. Dustið saltið af, látið edikið fljóta yfir flökin og standa í kæli í 60 mínútur.
  3. Takið flökin úr pæklinum og þerrið varlega. Nú ætti að vera hægt að fjarlægja glæra himnu sem er yfir roðinu. Snyrtið flökin og fjarlægið öll bein.
  4. Skerið flökin í 1 cm þykka strimla og setjið á disk. Berið fram með wasabi, soyasósu og sýrðum engifer.

Grillaður makríll með engifer, chili og lime

Heilgrillaður makríll í frábærri sósu.

Hráefni:

  • 4 stk smáir makrílar sem búið er að gera að.
  • 3 msk ólífuolía
  • 1 chili, fjarlægið fræ og saxið smátt
  • 1 hvítlauksgeiri, saxið smátt
  • 1 lítill bútur af ferskri engiferrót, saxið smátt
  • 2 tsk hunang
  • 2 lime, rífa börk og kreista safann
  • 1 tsk sesam olía
  • 1 tsk thailensk fiskisósa
Aðferð:
  1. Undirbúið grillið.
  2. Blandið saman í litla skál: 2 msk ólífuolíu, chili, hvítlauk, engifer, hunang, lime, sesamolíu og fiskisósu. Saltið að smekk.
  3. Skerið 6 skurði í hvora hlið makrílsins, ekki alveg að beini. Berið afganginn af olíunni á fiskinn og saltið örlítið.
  4. Grillið makrílinn í 5-6 mín á hvorri hlið þar til hann er stökkur og augun orðin hvít. Setjið á fat.
  5. Berið blönduna á fiskinn með teskeið og látið standa í 2-3 mín áður en borið fram.

Appelsínu- og harissagljáður makríll

Gómsæt og fljótleg makríluppskrift með austurlensku yfirbragði.

Hráefni:

  • 4 stk 75g makrílflök með roði
  • 2 msk hveiti
  • 1/2 tsk reykt paprikukrydd
  • 2 msk olífuolía
  • 1 appelsína, rífa börkin af hálfri, kreista safann
  • 1-2 tsk harissa paste
  • 50 gr ristaðar furuhnetur
  • 1 lítið búnt af kóriander, gróft saxað
Aðferð:
  1. Blandið saman hveiti og paprikudufti. Veltið makrílflökunum upp úr því og leggið til hliðar.
  2. Blandið saman 1 msk af ólífuolíu, rifnum appelsínuberki og harissa paste í lítilli skál.
  3. Setjið afganginn af olíunni á pönnu og hitið vel. Steikið flökin í 5 mín fyrst með roðið niður og snúið svo.
  4. Þegar fiskurinn er næstum steiktur - hellið appelsínu og harissablöndunni yfir og látið krauma og þykkna dálítið. Stráið yfir furuhnetum og kóriander.